Nokia 6700 Classic - Neyðarsímtöl

background image

Neyðarsímtöl
Mikilvægt:
Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Tækið mun eingöngu

reyna að koma á neyðarsímtölum í gegnum farsímakerfi. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei

treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Til að hringja neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að

ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:

Settu inn SIM-kort ef tækið notar slíkt kort

Eyddu takmörkunum sem þú hefur gert virkar í tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Ýttu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið þitt kann að

vera eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.