Neyðarsímtöl
Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Tækið mun eingöngu
reyna að koma á neyðarsímtölum í gegnum farsímakerfi. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Til að hringja neyðarsímtal:
1
Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að
ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:
•
Settu inn SIM-kort ef tækið notar slíkt kort
•
Eyddu takmörkunum sem þú hefur gert virkar í tækinu þínu.
•
Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.
2
Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3
Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
4
Ýttu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið þitt kann að
vera eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.