Nokia 6700 Classic - Ökutæki

background image

Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,

svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og loftpúðakerfi.

Frekari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.

52 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann að valda

hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur

og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða

aukabúnað með því. Hafa skal í huga að loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða fylgihlutum fyrir á

loftpúðasvæðinu.

Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við

stjórn flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.