Nokia 6700 Classic - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar með BL-6Q rafhlöðu. Hugsanlega verða hægt að

fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi

hleðslutækjum: AC-8, AC-15. Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er

auðkennd með einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.

SIM-þjónusta 49

background image

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er

orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins

skal endurhlaða rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að

tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar

mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.

Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun. Ekki má hafa

fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar

hleðslunni smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.

Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F).

Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa

tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur

beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta

gerst þegar vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða

hlutnum sem veldur tengingunni.

Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og

reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu forðast að hún

komist í snertingu húð eða augu. Gerist það skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða leita

læknisaðstoðar.

Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn

eða aðra vökva, eða bleyta hana. Rafhlöður geta sprungið ef þær skemmast.

Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða

sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur að rafhlaðan hafi

skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota hana. Aldrei skal nota skemmt

hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.

50 Vöru- og öryggisupplýsingar