Nokia 6700 Classic - Kveikt og slökkt á símanum

background image

Kveikt og slökkt á símanum

Kveikt og slökkt er á símanum með því að halda rofanum inni.
Ef beðið er um PIN-númer skaltu slá það inn (birtist sem ****).
Ef beðið er um tíma og dagsetningu skaltu slá inn staðartímann, velja tímabeltið út frá

staðartíma Greenwich (GMT) og slá inn dagsetninguna.

Sjá „Dagsetning og

tími“, bls. 32.

Þegar þú kveikir á símanum í fyrsta skipti kann að birtast spurning um hvort þú viljir

sækja stillingarnar frá þjónustuveitunni (sérþjónusta).