Flugsnið
Nota skal flugsniðið á stöðum sem eru viðkvæmir fyrir útvarpsbylgjum til að útiloka að
útvarpstíðni hafi áhrif á tækið. Þú hefur samt sem áður möguleika á því að spila leiki og
opna dagbókina og símaskrána. Þegar flugsniðið er virk birtist
á skjánum.
Flugsniðið gert virkt
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Snið
>
Flug
>
Virkja
eða
Eigið val
.
Flugsniðið gert óvirkt
Veldu eitthvert annað snið.
Tækið tekið í notkun 15
Viðvörun:
Í flugsniðinu er ekki hægt að hringja eða svara símtölum, þar á meðal neyðarsímtölum,
eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við símkerfi. Eigi að hringja verður
fyrst að virkja símaaðgerðina með því að skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal
slá inn lykilnúmerið.
Ef hringja þarf neyðarsímtal meðan tækið er læst og flugsniðið er virkt kann einnig að
vera hægt að slá inn neyðarnúmerið sem er forritað í tækið í reitinn fyrir lykilnúmerið
og velja 'Hringja'. Tækið staðfestir að verið sé að gera flugstillinguna óvirka til að hefja
neyðarsímtal.