Nokia 6700 Classic - Hringja

background image

Hringja

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Símtals-stillingar

og úr eftirfarandi:

Símtalsflutningur — Til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki

flutt símtöl ef einhver valkostur er virkur sem útilokar símtöl.

Sjá „Öryggi“, bls. 36.

Lyklaborðssvar — Til að svara mótteknum símtölum með því að styðja stutt á einhvern

takka, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann.

Sjálfvirkt endurval — tTil að hringja sjálfkrafa aftur í númer ef ekki tekst að koma á

símtali. Síminn reynir að hringja í númerið 10 sinnum.

Skýrleiki tals — Til að auka talskilning, einkum þegar umhverfishávaði er mikill.

Hraðval — Til að hringja í nöfn og símanúmer sem úthlutað hefur verið á talnatakkana

(2-9) með því að halda viðeigandi talnatakka inni.

Biðþjónusta símtala — Til að netkerfið láti vita af innhringingu meðan á öðru símtali

stendur (sérþjónusta).

Lengd símtals — Til að birta lengd símtals sem stendur yfir.

Samantekt símtals — Til að birta stuttlega áætlaða lengd allra símtala að þeim

loknum.

Birta upplýs. um mig — Til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt (sérþjónusta).

Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja

Stillt af

netkerfi

.

Lína til að hringja — Til að velja símalínu til að hringja, ef SIM-kortið styður margar

símalínur (sérþjónusta)