Nokia 6700 Classic - Kort og GPS

background image

Kort og GPS

Þegar innbyggði GPS-móttakarinn í tækinu hefur náð gervihnattarsambandi geta liðið

nokkrar mínútur áður en tækið birtir staðsetninguna.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð

á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða fyrir

áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann

að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt

GPS og alríkisáætlun um þráðlausa leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig

haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk

veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Verið getur að GPS-

merki náist ekki inni í byggingum eða neðanjarðargöngum og þau geta orðið fyrir

áhrifum frá efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta

eingöngu á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi fyrir staðsetningu

eða leiðsögn.