Minniskort
Notaðu minniskort til að geyma margmiðlunarskrár, svo sem myndskeið, lög,
hljóðskrár, myndir og gögn í skilaboðum.
Sumar möppurnar í Gallerí með efni sem síminn notar (til dæmis Þemu) er hægt að
geyma á minniskortinu.
Minniskort forsniðið
Sum minniskort eru forsniðin, en önnur þarf að forsníða. Þegar minniskort er forsniðið
er öllum gögnum eytt af því varanlega.
1 Til að forsníða minniskort velurðu
Valmynd
>
Gallerí
eða
Forrit
,
minniskortsmöppuna og
Valkostir
>
Valk. minniskorts
>
Forsníða
minniskort
>
Já
.
2 Þegar búið er að forsníða minniskortið skaltu slá inn heiti fyrir það.
Minniskortinu læst
Til að setja inn lykilorð (8 stafi að hámarki) til að læsa minniskortinu fyrir óleyfilegri
notkun, velurðu minniskortsmöppuna og
Valkostir
>
Valk. minniskorts
>
Setja
lykilorð
.
Lykilorðið er geymt í símanum og ekki þarf að slá það inn aftur á meðan minniskortið
er notað í sama síma. Ef nota á minniskortið í öðru tæki verður beðið um lykilorð.
Til að fjarlægja lykilorðið velurðu
Valkostir
>
Valk. minniskorts
>
Eyða lykilorði
.
Minnisnotkun skoðuð
Til að skoða minnisnotkun mismunandi gagna og það hversu mikið minni er laust á
minniskortinu fyrir ný forrit velurðu minniskortið og
Valkostir
>
Upplýsingar
.