Nokia 6700 Classic - Um tækið

background image

Um tækið

Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 850, 900,

1800, 1900 og WCDMA 900, 1900 og 2100 MHz kerfi. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar um símkerfi.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á netsíður þriðju aðila sem gætu

gert þér kleift að nálgast slíkar síður. Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki

stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast slík svæði skaltu huga að

öryggi og efni.

Viðvörun:

Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu.

Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur, einkalíf og

lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað

afritun, breytingu eða flutning sumra mynda, tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í

tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum

upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í notendahandbókinni.