
Lykilorð
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
>
Öryggi
>
Aðgangslyklar
til að stilla hvernig síminn
notar aðgangslyklana og öryggisstillingarnar.
Almennar upplýsingar
5

•
Öryggisnúmerið hindrar að síminn sé notaður í leyfisleysi. Forstillta númerið er
12345. Hægt er að breyta númerinu og láta símann biðja um númerið. Beðið er um
öryggisnúmerið í sumum aðgerðum, burtséð frá stillingum, t.d. ef setja á aftur upp
upphaflegar stillingar framleiðanda. Haltu númerinu leyndu og á öruggum stað
fjarri símanum. Ef þú gleymir númerinu og síminn er læstur mun síminn þarfnast
viðgerðar og því getur fylgt aukakostnaður. Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care
þjónustuveri eða seljanda símans.
•
PIN-númerið (UPIN) sem fylgir með SIM-kortinu (USIM) kemur í veg fyrir að SIM-
kortið sé notað í leyfisleysi.
•
PIN2-númerið (UPIN2-númerið), sem fylgir sumum SIM-kortum (USIM-kortum), er
nauðsynlegt til að hafa aðgang að tiltekinni þjónustu.
•
PUK- (UPUK-) og PUK2-númer (UPUK2-númer) kunna að fylgja SIM-kortinu (USIM-
kortinu). Ef þú slærð inn rangt PIN-númer þrisvar sinnum í röð ertu beðinn um PUK-
númerið. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi númer fylgja ekki með
símanum.
•
Þegar útilokunarþjónusta er notuð til að takmarka símtöl í og úr símanum
(sérþjónusta) er lykilorðs útilokunar krafist.
•
Til að skoða eða breyta stillingum öryggiseiningar fyrir vafrann velurðu
Valmynd
>
Stillingar
>
Öryggi
>
Still. öryggiseiningar
.